Nú eru jólin búin og ekki get ég sagt að þau hafi verið neitt spes, fékk flensu á þorlák og er búinn að vera veikur síðan. Það eina sem ég hef gert er að hanga heima og horfa á bíómyndir og sjónvarpið með mjög sætri stelpu sem heitir Tedda og njóta þess að horfa á myndirnar sem hún gaf mér sem eru stækkaðar myndir af mér hehe eins og ég geti ekki fengið nóg af sjálfum mér. Þessi jól eins og svo mörg hjá mér fóru í það að halda að jólaskapið komi bara að sjálfu sér en það er bara bévítans kjaftæði, því maður verður að hafa fyrir því að komast í jólaskap, koma sér upp rútínu. Ég er enginn jólastrákur vegna þess hvað ég fékk lélegar jólagjafir þegar ég var yngri ,fyrir utan Thundercats brúðu , Lazertag byssu og plötuna "ertu búinn að vera svona lengi" með Ladda kallið með vanþákklatan eða spilltan krakka en hinir krakkarnir fengu miklu stærri gjafir en ég. Gömul klysja er að segja börnum að það séu fullt af fátækum börnum sem fá ekki ekki einu sinni mat um jólin, en þessi klisja er bara bull, við búum við allt önnur lífsgæði en þau börn og af þessum myndum að dæma sem maður sér í sjónvarpinu þá stendur maginn út á þeim eins og þau séu nýbúin að gúffa heilli hýenu í sig. Ef þið botnið ekkert í þessu sem ég er að þrykkja á lyklaborðið hérna þá látið mig vita, en hafið það hugfast að mikil innivera og flensa getur gert hvern mann geðveikan.
Munið að jólin eru hátið barnanna og fyrir þau á þetta að vera númer 1,2 og 3. og litlir hlutir fyrir ykkur foreldra getað verið algjör heartbreaker fyrir litli krílin. Þannig að vöndum jólin og njótum hvers annars og okkar sjálfra.
Gleðilega hátíð fólk og njótið sem best.
28. desember 2006 klukkan 02:04
Karl Grönvold 1 athugasemd
Nokkrir mánuðir liðnir og nú er komið að því að dusta af fingrunum rykið og reyna lokatilraun á að gerast "nörd". hehe. Voða litið búið að gerast hjá mér nema að ég er byrjaður aftur í helvítis boltanum, er að spila með Gróttu núna og verð að segja að blátt og svart fer mér bara ágætlega. Okkur hefur gengið bærilega og erum í 2. sæti með leik til góða fyrir jólafrí. Ég er lagður í einelti af strákunum og þá helst Kára markverði sem gerir ekki annað en að setja út á brandarana mína. Veit ekki hvað manninum gengur til með þessu vítaverða athæfi en ég ber engan kala til hans. Sálfræðingurinn minn sagði mér að ég ætti tjá mig meira til að losa um innilokaða reiði. hehe. Nóg af bulli.
Sá sem svarar commentar fyrstur fær hammara og franskar að launum.
Takk fyrir túkall.
16. desember 2006 klukkan 01:39
Karl Grönvold 4 athugasemdir
Glæsilegur frambjóðandi þeirra sjálfstæðismanna í Árborg sigraði með miklum mun í sveitastjórnarkosningum er ekki setning sem við eigum eftir að sjá í fréttum eftir þessu þeysireið þessa manns. Tekinn fyrir að vinna spjöll á ljósastaur, ölvunarakstur, flótta af slysstað og á meðan við erum að þessu af hverju ekki að búa til nýja ákæru eins og fyrir að vera opinber hálfviti.Þetta er klárlega ekki á hvers manns færi að drulla niður ljósastaur en honum tókst það bara nokkuð vel kallinum. Ég veit ekki hver stefnumál hans voru í þessum kosningum en miðað við hans framkomu undanfarið þá er hann greinilega á móti offjölgun á ljósastaurum sem er auðvitað vandamál í Reykjavík, hann vill líka leyfa ölvun í akstri og flýja af slysstað. Held að þeir í sjálfstæðisflokknuim séu búnir að henda honum út á plan svo hann geti skitið á sig annarsstaðar en hjá þeim. Mig hefur alltaf líkað þokkalega vel við manninn en eftir þetta þá missti hann allt niðrum sig og gott betur en það.
Jesus H.C. mar, skutlaði konunni í vinnuna í morgun og ákvað svo að fara í ljós, maður rölti í sakleysi sínu inn á sólbaðsstofuna biður um tíma og á borðinu er allskyns krem og olíur til að fá meiri og endingarbetri brúnku. Ég ákvað að kaupa einn lítinn belg af gylltri olíu og þar sem ekki gefst mikill tími til að bera á sig fyrir tímann þá hraðaði ég mér inn í klefann og vippaði mér úr fötunum og bar innihald gyllta belgsins á mig og þar sem enginn spegill er í klefanum þá var það ekki til að hjálpa mér til að bera þetta jafnt á mig. Og auðvitað þá dugði olían ekki á líkamann og álít ég þetta vera okur og myndi einna helst duga á 12 ára einstakling en ekki fullvaxta myndarlegan og helköttaðan Kalla, (sem í þessu tilviki myndi vera ég). 12 mínútum síðar þá slekkur bekkurinn á sér og tíminn er búinn (augljóslega) stend upp og mig svíður eins og andskotinn í himnaríki í húðinni. Þegar ég kem útúr klefanum þá er einhver samkoma af stelpum fyrir utan að ræða einhver stelpumál eins og þær hafa tilhneigingu til, drullast ég þá út á handklæðinu og held á fötunum mínum og þegar ég er að komast í sturtuklefann þá finn ég að handklæðið er að losna af mér miðjum, Á þessu augnabliki þyrfti maður að hugsa fljótt því ekki gat ég staðið á sprellanum einum saman. Auðvitað greikkar maður sporin til að geta minnkað skaðann en við þessa hreyfingu þá flýgur handklæðið af og ég stoppa af einhverjum bjánalegum ástæðum, og þarna stend ég buttnaked og kætti það aðstandendur þessa atviks nokkuð og hraðaði ég mér inn í sturtuna til að flýja af vettvangi. Ekki nóg með þessa strípiþörf hjá mér þá var ég að uppgötva áhrif Gyllta belgsins á húðina á mér og ég skal segja ykkur fólk að annan eins sviða í húð og roða hafði ég aldrei fundið síðan ég stökk í brenninetlurunna í Danmörku hér um árið og kaldari sturtu hef ég aldrei farið í, var á 15 gráðum í korter að ná sviðanum úr húðinni. Mig langar bara að segja að það er ekki tekið út með sældinni að fá smá lit á sig, og hvað fólk leggur á sig yfir höfuð til að fá betra útlit. Það munaði líka píkuhári og býflugu að ég missti ekki vitið í sturtunni og öskraði eins og smátelpa. Drullist í ljós og gerið það sem ykkur finnst best en þetta var síðast ljósatíminn minn í viku. takk fyrir og túkall.
21. apríl 2006 klukkan 15:23
Karl Grönvold 3 athugasemdir
Þeir sem þekkja mig þá vita þeir að ég er að eðlisfari frekar neikvæður einstaklingur og ef mér líkar ekki eitthvað þá lýsi andúð minni óspart á því sem verður fyrir barðinu. Nú er svo komið að því að nefna erkifífl vikunnar og mun ég nefna einn í hverri viku ef ég nenni. Erkifífl vikunnar er enginn annar en hinn vondkunni og einstaklega leiðinlegi maður Ásgeir Kolbeins, útvarpsmaður og sjónvarpsmaður hjá 365 miðlum. Þessi maður hefur farið í taugarnar á mér alveg frá því að ég sá hann fyrst, maðurinn er fæddur rauðhærður og litar á sér líkamshár, mætti halda að hann skammaðist sín fyrir að hafa fæðst með þennan háralit, ég myndi nú ef ég væri hann skammast mín á að hafa fæðst inní þennan heim. Svo er eitt, Séð og heyrt slúðurblaðið hefur gert í því að auglýsa það þegar hann er á lausu og birt greinar með fyrirsögnunum "Heitasti piparsveinn Íslands". svo í næsta tölublaði kemur fram að hann sé byrjaður með einhverri nýrri telpu, og yfirleitt eru þetta stelpur sem eru aldar upp við þetta FM,hnakka957 trash. Hef ég heyrt fullt af fólki vera að trassa þennan gæja í drasl og ekki bara fyrir útlitið heldur líka attitudið hjá honum. En honum til varnaðar þá kannski ólst hann upp í röngu umhverfi og hefði átt að fara í lakið þetta grey.
Nú þegar veikindum er að ljúka hjá mér þá tekur ansi viðburðaríkur tími við hjá mér, ég eiginlega veit ekki hvernig ég á að fara að þessu. Svo er í koppinn drullað að við erum komin með netið igen og þar af þegjandi er skjárinn og sitthvað fleira góðgæti komið inn á ný eftir leiðinlega skuldaútlegð, svo erum við reyndar með ps2 og fullt af leikjum sem hægt er að leika sér í skammdeginu og jafnvel fyrr og seinna, sem sagt alltaf, æfingar eru á sínum stað um kvöldmatarleytið sem gerir það að verkum. Loksins fékk ég vinnu sem ég byrja í eftir viku og það verður hreint helvíti að byrja eftir leti í nokkra mánuði. Sem sagt vikan framundan verður notuð í leti og ekkert annað ná high skorum í leikjum, horfa á íþróttir og animal channel. Þvílíkur draumur hugsa kannski margir þ.á.m. ég þangað til að ég sá þátt á discovery um daginn um fátækt og vesæld í þriðju ríkjum heimsins og á boðstólnum þar var þrumarinn ekki þreyttur með með sméri heldur voru flugur í tonnavís í boði og ég í fáfræði minni hélt að ég væri svo illa staddur að ég ætti ekki einu sinni fyrir netinu og sjónvarpinu heima hjá mér. Þetta er kannski allt sem maður temur sér til að lifa við. Skýr skilaboð: höldum okkur á jörðinni og sköpum okkar eigin framtíð.
06. apríl 2006 klukkan 19:12
Karl Grönvold 1 athugasemd